Til Hugins

Elsku hjartans engillinn minn!

Ég sakna þín svo mikill ástin mín! Oft koma tímar sem ég græt útaf nákvæmlega engu. bara allt í einu brotna ég niður. sérstaklega í tímum, þótt ég vilji það ekki þá bara í þögninni þá missi ég mig stundum og brotna niður, líka á kvöldin.

Mig dreymdi þig aftur í nótt. núna lástu á gólfi frammi á einhverjum stigagangi.ég leggst við hliðina á þér og snerti kinnina þina, þú opnar augun og brosir og svo föðmumst við, og ég finn hlíuna frá þér.<3!

Mig langar svo að koma við þig aftur. bara smá, sjá þig! knúsa þig! Ég sakna þín svo engillinn minn !

Ég er ennþá alveg ómöguleg. utan við mig og oftar en ekki rosalega þreytt. ligg heilu og hálfu næturnar andvaka.

æji ástin mín! Ég sakna þín, þarf svo að tala við þig.

Ég elska þig ! <3

systan þín

Hafrun Eva

 

 

Kveikti á kerti fyrir þig! minning þín er ljós í hjarta mér!<3

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl.. ég er alveg ókunnug en mig langaði bara að benda þér á eitt sem kallast sálfarir í tengslum við draumana þína, þú gætir haft áhuga á að skoða það.

ókunnug (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband