7.4.2008 | 12:26
2 vikur.
sælir allir.
Í dag eru liðnar 2 vikur síðann Huginn Heiðar engillinn minn dó.
þessar 2 vikur hafa verið svo skrítnar. liðið í já einhverskonar móðu. Ég er ekki búin að átta mig almennilega á því að hann sé farinn.
samt sem áður...
Mig dreymdi Huginn í nótt.
Mig dreymdi það að ég væri gangandi berfætt á túni. það var gott veður og á túnið grænt og mikið gras á því, svo geng ég að Huginn þar sem hann situr innan um fullt af sóleyjum. Hann er laus við allar snúrur og geislaði af lífsorku og gleði. Hann talar við mig, segir mér að ég verði að vera sterk og honum líði vel. svo stendur hann upp og gengur í burtu.
Mér held ég hafi aldrei liðið jafn vel og þegar ég vaknaði í morgun. Núna veit ég að honum lýður vel og hefur það gott.
samt sakna ég hans svo óendanlega mikið. oft þegar ég er ein á kvöldin eða einhverntímann þá hugsa ég til hans og oftar en ekki fæ ég tár í augun. það er svo sa´rt að vita það að ég mun aldrei geta komið við hann aftur, aldrei kysst hann, fengið bit til baka og finna lyktina af honum <3
Sakna þín ástin mín<3!
Hafrún Eva
Athugasemdir
Fjóla Æ., 7.4.2008 kl. 15:19
Amma (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 20:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.